Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands kom í settið til Kristjáns Arnar á Útvarpi Sögu. Umræðuefnið var Reykjavíkurskákmótið en gríðarleg spenna er hlaupin í mótið þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Áttunda umferð verður tefld í dag og lýkur mótinu á morgun þegar níunda umferð verður tefld kl.
11:00 um morguninn.
Stórmeistarinn
Alisher Suleymenov frá Kasakstan
er einn efstur með sex vinninga þegar sjö umferðir hafa verið tefldar en alls
sautján keppendur fylgja honum fast á eftir með fimm og hálfan vinning og þar af fjórir Íslendingar, stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson, Héðinn Steingrímsson, Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson!
Í þættinum eru spilaðir hljóðbútar af stuttum viðtölum sem tekin voru við aðstoðarmótshaldara og keppendur seint í gærkvöldi þegar sjöundu umferð var að ljúka í Hörpunni.