Við skákborðið

Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og ritstjóri DV.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um Skákþing Íslands sem nú stendur yfir, nýafstaðið áskorendamót FIDE sem fram fór í Toronto í Kanada þar sem átta af sterkustu skákmönnum heims kepptu tvöfalda umferð allir við alla um réttinn til að skora á Ding Liren núverandi heimsmeistara í skák síðar á árinu. Einnig ræddu þeir fráfall fyrrverandi stórmeistara Isa Kasimi (Igors Rausis) frá Lettlandi, sem lést fyrr á árinu (f. 1961 - d.2024), en hann var gripinn glóðvolgur við svindl í miðju skákmóti á salerni þar sem hann notaði símatölvu sér til aðstoðar. Igor Rausis náði mest 2.686 elo-stigum árið 2019 eða sama ár og hann var staðinn að verki í opna skákmótinu í Strassborg en þá var hann elsti maðurinn á lista FIDE yfir 100 stigahæstu skákmenn heims. Rausis var sviptur stórmeistaratitli sínum og fékk sex ára keppnisbann af siðanefnd/dómstóli FIDE í desember sama ár. Þáttastjórnandi, Kristján Örn Elíasson, sat í rannsóknar- og ákærunefnd FIDE á þessum tíma og var einn þriggja meðlima Fair Play nefndar FIDE sem rannsakaði málið og gaf út ákæru á hendur Igor Rausis.

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.