Frelsi og fullveldi

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi boðaði til 6. umræðufundar félagsins í Catalínu í Hamraborg, Kópavogi mánudaginn 15. janúar síðastliðinn.

Umræðuefni: Hingað og ekki lengra - Verjum landamærin

Framsögumenn: Jón Magnússon og Ólafur Ísleifsson fyrrverandi alþingismenn

Fundarstjóri: Anna Björg Hjartardóttir

Breytt stefna í málefnum hælisleitenda var mikið rædd og eftir að framsögumenn höfðu lokið máli sínu opnaði fundarstjóri á mælendaskrá fundarins. Miklar og góðar umræður spunnust en hlýða má á framsögumenn og ræður allra sem tóku til máls í spilaranum hér að ofan.

Til upplýsingar: Eftir að spilarinn hefur verið settur í gang er nóg að ýta á tímalínu viðkomandi ræðumanns hér að neðan og þá hrekkur spilarinn þangað. Einnig má byrja á að velja tímalínu ræðumanns og ýta síðan á spilarann.

Tímalínur ræðumanna:

0:00:00  Geir Waage
0:01:56   Jón Magnússon
0:25:37   Ólafur Ísleifsson
0:45:57   Ólafur Ísleifsson les tillögu að ályktun um stefnubreytingu í málefnum hælisleitenda
0:49:37   Arndís Ósk Hauksdóttir
1:01:43    Edith Alvarsdóttir
1:08:41    Valdimar H. Jóhannesson
1:16:51     Guðfinnur Halldórsson
1:20:28    Halldór Sigurþórsson
1:27:43    Halldór Gunnarsson
1:34:05    Unnur Eggertsdóttir
1:37:28    Guðbjörn Jónsson
1:41:09    Jón Magnússon
1:44:03   Ólafur Ísleifsson ber upp tillögu að ályktun um stefnubreytingu í málefum hælisleitenda (samþykkt samhljóða)
1:48:12    Geir Waage slítur fundi

What is Frelsi og fullveldi?

HVAÐ ER FRELSI OG FULLVELDI?

Málfundafélagið Frelsi og fullveldi var stofnað 30. mars 2023 til að standa vörð um frelsi einstaklingsins, fullveldi þjóðarinnar og óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum til lands og sjávar.

Heimilin og fyrirtækin eru hornsteinar samfélagsins. Heimilin eru friðheilagur griðastaður fjölskyldunnar. Fólki er frjálst að stofna og reka atvinnufyrirtæki sem keppa hvert við annað um að veita sem besta þjónustu. Við viljum standa vörð um atvinnustarfsemina í landinu og þar á meðal okkar grundvallaratvinnuvegi til lands og sjávar.

Félagið leggur höfuðáherslu á að skólar og sjúkrastofnanir séu fyrsta flokks. Engin þjóð sem er annt um fullveldi sitt lætur landamæri sín standa opin. Við viljum hafa fulla stjórn á landamærum okkar og láta af þeirri gengdarlausu fjársóun sem fylgt hefur þessum málaflokki.

Ísland er lýðræðisríki og réttarríki með áherslu á mannréttindi, mannhelgi og virðingu fyrir lífinu. Ísland er menningarríki og velferðarríki sem stendur vörð um hag þeirra sem standa höllum fæti. Ísland á í góðum samskiptum við umheiminn og við stöndum fast að baki því að eiga í góðu alþjóðlegu samstarfi með áherslu á Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið og norræna samvinnu auk samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem tryggir frjáls viðskipti við Evrópuríkin.

Við stjórn efnahagsmála leggur Frelsi og fullveldi áherslu á ábyrga stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum, takmörkuð umsvif hins opinbera og lækkun skatta og álaga.

Þetta eru höfuðatriðin í stefnu félagsins.