Við skákborðið

Í dag var aftur á dagskrá viðtal sem Kristján Örn Elíasson átti við Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags Reykjavíkur 15. nóvember 2023. Ríkharður lést 20. desember s.l. eftir skammvinn veikindi aðeins 56 ára að aldri. Jarðarför hans fór fram frá Grafarvogskirkju í dag að viðstöddu fjölmenni. Til minningar um Rikka, eins og hann var gjarnan kallaður af vinum sínum, var viðtalið aftur flutt í skákþættinum á Útvarpi Sögu í dag.

(Repost E44 from Nov 15, 2023)

What is Við skákborðið?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.