Gímaldið

Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur.
  • Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða?
  • Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sker sig úr þegar kemur að fjárhagsstöðu?
  • Aðeins eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu nær að koma meira en helmingi eins árs barna í leikskóla
  • Hvaða forsendur gefa menn sér þegar þeir ramma inn vandamálin og hvernig eru tölur notaðar til að sannfæra frekar en upplýsa?
  • Góð ráð til kjósenda þegar leggja á mat á tölur sem varpað er fram í kosningabaráttu
Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

What is Gímaldið?

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡