Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög.
Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur.
Helga Arnardóttir ræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.
- Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál.
- Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið 2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.
- Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026.
- Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur.
- Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar.
- Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.
What is Gímaldið?
Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp samfélagið. Þú getur gerst áskrifandi hér: https://gimaldid.is/askrift/