Heimsendir

Er Cult orkudrykkur eða sértrúarsöfnuður? Eru til cult á Íslandi? Af hverju eru svona mörg cult í Japan? Þarf alltaf að vera heimsendir?
Til að svara þessum spurningum og fleirum fæ ég til mín leikstjórann Tómas Helga Baldursson.

Show Notes

Í þriðja þætti Heimsendis ræðum við Tómas Helgi Baldursson um sértrúarsöfnuði og okkar reynslu af þeim úr daglegu lífi. Við ræðum aðallega um söfnuði í Japan, Bandaríkjunum og á Íslandi. Einnig skoðum við ástæður þess að fólk gengur í slíka söfnuði. 

Heimsendir er hlaðvarp þar sem tekin eru fyrir alls konar málefni sem eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa heims. Umræðurnar eru á léttum en þó heimspekilegum nótum þar sem sköpunargleði og ímyndurnaraflið ráða för. 

Tekið skal fram að við erum ekki sérfræðingar heldur áhugamenn og munu umræðurnar endurspegla það.

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo