Heimsendir

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er listakona sem hefur meðal annars varið síðustu árum í sköpun og framleiðslu á ÉG BÝÐ MIG FRAM seríunum. Nýjasta serían ber nafnið NÝR HEIMUR og verður sýnd í Tjarnarbíó í haust. Við ræðum heim dagsins í dag, bjartsýnis sem og svartsýnisspár, heimsenda, framtíð og fortíð.

Takk fyrir að hlusta kæru hlustendur. PLEASE skrifið umsögn og gefið einkunn á hlaðvarpsveitum! Saman sigrum við algoritmann!

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo