Heimsendir

Hvað er gervigreind? Hvernig hefur hún áhrif á líf okkar? Munu vélarnar taka yfir?
Til að svara þessum spurningum og fleirum hef ég fengið til mín Níels Thibaud Girerd, leikara og spekúlant.

Show Notes

Í þessum fyrsta þætti Heimsendis ræðum við Níels Thibaud Girerd um gervigreind og hvernig hún mun hafa áhrif á okkur í náinni framtíð. Við leitumst við að svara spurningum á borð við: Hver er munurinn á gervigreind og manneskju? Hver er framtíð vinnunnar? Mun gervigreindin taka yfir?

Heimsendir er hlaðvarp þar sem tekin eru fyrir alls konar málefni sem eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa heims. Umræðurnar eru á léttum en þó heimspekilegum nótum þar sem sköpunargleði og ímyndurnaraflið ráða för. 

Tekið skal fram að við erum ekki sérfræðingar heldur áhugamenn og munu umræðurnar endurspegla það.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo

What is Heimsendir?

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Austur Asíu, Kína, Rússland og fleira.

Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
Artwork: Sherine Otomo